Landssamband lögreglumanna styrkir Mæðrastyrksnefnd

hag / Haraldur Guðjónsson

Landssamband lögreglumanna styrkir Mæðrastyrksnefnd

Kaupa Í körfu

LÍKNAR- og hjálparsjóður Landssambands lögreglumanna afhenti vikunni Mæðrastyrksnefnd 709.000 krónur í tilefni af 40 ára afmæli Landssambandsins. Fjöldi lögreglumanna í Landssambandinu er nú 709 talsins og miðaðist gjöfin við 1.000 krónur fyrir hvern lögreglumann. Við gjöfinni tóku Ragnhildur Guðmundsdóttir og Margrét Sigurðardóttir frá Mæðrastyrksnefnd. Með gjöfinni vill lögreglan á landinu sýna þeim stuðning sem minnst mega sín og nauðsynlega þurfa á stuðningi að halda þessa dagana. Gjöfina afhenti stjórn sjóðsins, þeir Geir Jón Þórisson, Gissur Guðmundsson og Óskar Sigurpálsson *** Local Caption *** Steinar Adólfsson

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar