Jólasveinar Guðlaugar

Jólasveinar Guðlaugar

Kaupa Í körfu

We wish you a merry christmas,“ er sungið glaðlega undir bjölluhljómi þegar gengið er inn. Það tekur nokkra stund áður en blaðamaður sér að það er jólakransinn uppi á vegg sem býður hann velkominn með þessum hætti og framkallar þannig bros hjá gestinum. Brosið breikkar heldur betur þegar gengið er inn í íbúðina því þar blasir við ævintýraheimur jólasveina, jólakellna, jólahúsa, jólamýslna, jólakrakka, jólatrjáa og jólagrísa og svo mætti lengi telja. María, Jósef, Jesúbarnið í jötunni, vitringar, fjárhirðar og englaherskarar láta sig heldur ekki vanta í þennan dýrðlega hóp. Hver einasta stytta á sér sinn stað á glitrandi jólasnjó og er upplýst með hundruðum smápera. Það þarf ekki að spyrja að vinnunni sem liggur á bak við uppsetningu jólaveraldar Guðlaugar P. Wium, sem á heiðurinn af litlu postulínsherskörunum sem gægjast úr hverri hillu og hverju borði heimilisins MYNDATEXTI Einn og átta Jólasveinarnir eiga hver sinn svip og heilsa gestum ofan af hillum en jólamýsnar lauma sér inn á milli þeirra

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar