Saurbæjarkirkja 150 ára

Benjamín Baldursson

Saurbæjarkirkja 150 ára

Kaupa Í körfu

Eyjafjarðarsveit | Saurbæjarkirkja í Eyjafirði er 150 ára um þessar mundir. Haldið var upp á það um liðna helgi. Þá var messað í kirkjunni og kom vígslubiskupinn á Hólum, séra Jón Aðalsteinn Baldvinsson, og predikaði og þjónaði fyrir altari, ásamt sóknarprestinum, séra Hannesi Erni Blandon, prófasti Eyjafjarðarprófastsdæmis. Kirkjukór Laugalandsprestakalls söng undir stjórn Daníels Þorsteinssonar. Kristjana Arngrímsdóttir á Tjörn í Svarfaðardal söng einsöng við undirleik Daníels MYNDATEXTI Kirkjugestir fengu kaffi í boði kvenfélagsins að lokinni afmælisathöfninni í Saurbæjarkirkju sem nú fagnar 150 ára afmæli.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar