Myndlistardeild Lhí eldar súpu fyrir stjórnmálamenn

Valdís Thor

Myndlistardeild Lhí eldar súpu fyrir stjórnmálamenn

Kaupa Í körfu

NOKKRIR ráðherrar ríkisstjórnarinnar höfðu þegið boð nemenda í myndlistardeild Listaháskóla Íslands um að borða með þeim súpu og ræða menningarmál í hádeginu á föstudaginn var. „Rétt fyrir hádegið voru síðan allir ráðherrarnir boðaðir á fund með klukkustundar fyrirvara. Þorgerður Katrín menntamálaráðherra og Þórunn umhverfisráðherra voru miður sín yfir að komast ekki, þannig að við hyggjumst bjóða þeim aftur sérstaklega,“ segir einn nemendanna, Lilja Birgisdóttir. Undanfarnar tvær vikur hefur Ósk Vilhjálmsdóttir staðið að súpufundum með nemendum, undir yfirskriftinni „,List í frjálsu falli.“ Meðal annars hefur verið rætt um list og listsköpun, listnám, list og samfélag og list og peninga MYNDATEXTI Kreppusúpa Allir fengu skammt

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar