Íþróttamenn ársins

Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Íþróttamenn ársins

Kaupa Í körfu

Í GÆR valdi Íþróttasamband fatlaðra íþróttamenn ársins 2008 í sínum röðum. Sundgarparnir Sonja Sigurðardóttir og Eyþór Þrastarson, bæði úr ÍFR, hrepptu hnossið, en þau áttu bæði góðu gengi að fagna á Ólympíuleikunum í Peking; Eyþór bætti tíma sinn í 800 m skriðsundi um heilar 15 sekúndur, sem skilaði honum í áttunda sætið, og Sonja varð í 10. sæti í 50 m baksundi og náði sínum besta tíma í tvö ár. Þau eru því vel að nafnbótinni komin MYNDATEXTI Þau Eyþór og Sonja taka við bikurum og blómvöndum í gær á Radisson SAS Hótel Sögu. Þau áttu hvorugt von á nafnbótinni.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar