Skákmót í Landsbanka

Skákmót í Landsbanka

Kaupa Í körfu

FRIÐRIKSMÓT Landsbankans í skák fór fram í aðalútibúi bankans á laugardag. Helgi Ólafsson stórmeistari bar sigur úr býtum, fékk 8,5 vinninga í 11 skákum, en mótið þótti ákaflega spennandi, því forystuskipti urðu undantekningalaust milli umferða. Helgi hafði því heppnina með sér að vera efstur í lokin. Í 2.-6. sæti með 8 vinninga urðu Jón Viktor Gunnarsson, Arnar Gunnarsson, Jóhann Hjartarson, Stefán Kristjánsson og Bragi Þorfinnsson MYNDATEXTI Helgi Ólafsson stórmeistari ígrundar vandlega sinn næsta leik.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar