Geislabaugur

Valdís Thor

Geislabaugur

Kaupa Í körfu

Barnablaðið heyrði af leikskóla einum í Reykjavík sem heitir því skemmtilega nafni Geislabaugur. Það þótti því tilvalið í tilefni hátíðar ljóss og friðar að heimsækja þennan leikskóla og spjalla við nokkur börn MYNDATEXTI Ingibjörg Embla Davíðsdóttir, 5 ára. Hvers vegna höldum við jól? „Af því að Jesúbarnið fæddist á jólunum.“ Hvað fékkstu í skóinn í morgun? „Skopparabolta.“ Hver er uppáhalds jólasveinninn þinn? „Kertasníkir, af því að hann elskar kerti.“ Hvað langar þig í jólagjöf? „Mig langar í samstæðuspil, það er svo skemmtilegt.“

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar