Geislabaugur

Valdís Thor

Geislabaugur

Kaupa Í körfu

Barnablaðið heyrði af leikskóla einum í Reykjavík sem heitir því skemmtilega nafni Geislabaugur. Það þótti því tilvalið í tilefni hátíðar ljóss og friðar að heimsækja þennan leikskóla og spjalla við nokkur börn MYNDATEXTI Gunnþór Leó Gíslason, 5 ára. Hvers vegna höldum við jól? „Því Jesús fæddist á jólunum.“ Hvað fékkstu í skóinn í morgun? „Ég fékk jólaglas. Ég fékk einu sinni kartöflu þegar ég var lítill. Þá var ég óþekkur.“ Hver er uppáhalds jólasveinninn þinn? „Gluggagægir.“ Hvað langar þig í jólagjöf? „Ég veit það ekki.“

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar