Flugeldasölur

Guðmundur Rúnar Guðmundsson

Flugeldasölur

Kaupa Í körfu

Spyrja má hvort skotleyfi hafi verið gefið út á bankastjóra, helstu útrásarvíkingana og stjórnmálamenn þessi áramótin, en björgunarsveitirnar selja þetta árið tertu með myndum af helstu bankastjórunum og aðra tertu með mynd af ýmsum stjórnmálamönnum. Almenningur hefur því tækifæri til að láta í ljós gremju sína með stöðu mála með því að sprengja myndir af þessum mönnum í loft upp. Hugmyndin er þó ekki ný af nálinni, því fyrir nokkrum árum var hægt að kaupa rakettu með mynd af stjórnmálamanni og senda viðkomandi út í veður og vind.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar