Mótmælafundur Lækjartorgi

Rax / Ragnar Axelsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Mótmælafundur Lækjartorgi

Kaupa Í körfu

STÖÐVIÐ fjöldamorð Ísraelshers á Gaza, slítum stjórnmálasambandi við Ísrael, voru kröfur dagsins á útifundi sem haldinn var á Lækjartorgi síðdegis í gær til að mótmæla blóðsúthellingum á Gaza-spildunni. Lögreglan taldi að um tvö hundruð manns hefðu sótt útifundinn sem að hennar dómi fór friðsamlega fram. Útifundurinn var undirbúinn af Félaginu Ísland-Palestína með stuðningi fjölmargra félagasamtaka. Hópur fólks fór af fundinum og mótmælti við sendiráð Bandaríkjanna við Laufásveg. Hafði lögreglan sérstakan viðbúnað vegna þess. Henti fólk skóm að sendiráðinu og vísaði með því til mótmæla írasks blaðamanns gegn George W. Bush, forseta Bandaríkjanna.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar