Riddarakross afhentur á Bessastöðum

Riddarakross afhentur á Bessastöðum

Kaupa Í körfu

FORSETI Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, sæmdi ellefu Íslendinga heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu við hátíðlega athöfn á Bessastöðum á nýársdag. Á myndinni má sjá orðuhafa í eftirfarandi röð: Ástbjörg Stefanía Gunnarsdóttir, íþróttakennari, fyrir frumkvæði í almenningsíþróttum og lýðheilsu. Grímur Karlsson, fyrrverandi skipstjóri, fyrir smíði báta- og skipalíkana. Jón Arnþórsson, forstöðumaður Iðnaðarsafnsins, fyrir framlag til varðveislu íslenskrar verkkunnáttu og safnamenningar. Hildur Sæmundsdóttir, ljósmóðir, fyrir framlag til heilbrigðismála og forvarna. Elín Ósk Óskarsdóttir, óperusöngkona, fyrir framlag til íslenskrar tónlistar og menningarlífs. Grétar Þorsteinsson, fyrrverandi forseti ASÍ, fyrir störf í þágu íslensks verkafólks. Jón Eiríksson, fræðimaður og fyrrverandi oddviti, fyrir félagsstörf og framlag til menningarsögu. Steinunn Þórarinsdóttir, myndlistarmaður, fyrir framlag til íslenskrar og alþjóðlegrar myndlistar. María Jónsdóttir, kvæðakona og fyrrverandi bóndi, fyrir framlag til varðveislu þjóðlegrar kvæðamenningar. Kjartan Ragnarsson, forstöðumaður Landnámsseturs Íslands, fyrir störf í þágu leiklistar og nýsköpun í miðlun menningararfs. Sigurður Guðmundsson, forseti heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands, fyrir framlag til heilbrigðismála.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar