Bílvelta á Suðurlandsvegi

Bílvelta á Suðurlandsvegi

Kaupa Í körfu

HELLISHEIÐI breyttist í slysagildru í gærdag þegar skyndilega snöggkólnaði og glerhálka myndaðist á örskotsstundu. Fimm slys urðu á heiðinni á skömmum tíma. Jeppabifreið fór út af veginum við Skíðaskálann í Hveradölum og valt. Ökumaðurinn var fluttur á slysadeild og er talinn alvarlega slasaður. Fáum mínútum áður fór önnur jeppabifreið út af veginum á svipuðum stað og valt. Þrír voru fluttir á slysadeild en meiðsli ekki talin alvarleg. Þá fór bíll út af veginum við Kambabrún en ekki er vitað um meiðsli. Loks fór jeppi með kerru út af veginum við Lambafell í Þrengslum. Ekki urðu slys á fólki

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar