Sundmót fatlaðra / Jón Margeir

Sundmót fatlaðra / Jón Margeir

Kaupa Í körfu

JÓN Margeir Sverrisson hlaut sjómannabikarinn fyrir besta afrekið á Nýárssundmóti Íþróttasambands fatlaðra sem fram fór í gær. Keppendur eru börn og unglingar og hefur mótið farið fram frá árinu 1984. Jón Margeir syndir fyrir Íþróttafélagið Ösp og vann besta afrekið í 50 m skriðsundi er hann kom í mark á tímanum 28,82 sek. og hlaut fyrir vikið 676 stig. Stigin eru reiknuð út frá heimsmeti sem gildir 1.000 svo árangur Jóns er frábær og ljóst að hér er á ferðinni sterkur og efnilegur sundmaður. Ragnar Ingi Magnússon átti næststigahæsta sund mótsins, einnig í 50 m skriðsundi, er hann kom í mark á tímanum 29,47 sek. og hlaut fyrir vikið 632 stig. Ragney Líf Stefánsdóttir frá ÍVARI á Ísafirði hafnaði í 3. sæti en hún keppti einnig í 50 m skriðsundi. Jón Margeir er á myndinni hér til hægri með Sjómannabikarinn. Ómar Óskarsson ljósmyndari Morgunblaðsins myndaði stemninguna í Laugardalnum og segja þær myndir meira en þúsund orð.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar