Snjór

Skapti Hallgrímsson

Snjór

Kaupa Í körfu

TÖLUVERT snjóaði á Akureyri aðfaranótt laugardagsins og í bítið var bærinn eins og fallegasta jólakort á að líta. Margir voru á ferli á tveimur jafnfljótum fyrir hádegi í mjög góðu veðri; m.a. bræðurnir Sævar Þór og Birgir Þór með móður sinni Guðbjörgu og ömmunni Möggu Kristínu. Þeir voru á leið úr Þorpinu heim til ömmu á Brekkunni að fá sér graut og notuðu ferðina til snjókasts þar sem amman var meðal skotmarka.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar