Kajakæfing í Laugardalslaug

Kajakæfing í Laugardalslaug

Kaupa Í körfu

KAYAKKLÚBBURINN stóð fyrir tveimur námskeiðum í innilauginni í Laugardalnum um helgina. Annars vegar byrjendanámskeiði, sem Magnús Sigurjónsson kajakkennari segir að ætti að vera skylda áður en fólk hætti sér út á sjó, og hins vegar veltunámskeiði. Á byrjendanámskeiði er kennd umgengni við bátinn, áratækni, félagabjörgun, áraflot og stuðningsáratök. Næsta námskeið verður helgina 21.-22. febrúar.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar