Vilhjálmur Hjálmarsson

Vilhjálmur Hjálmarsson

Kaupa Í körfu

MÉR líst bara ágætlega á nýja formanninn og bara alla frambjóðendurna,“ sagði Vilhjálmur Hjálmarsson frá Brekku, fyrrverandi ráðherra, að loknu formannskjörinu, en hann var elsti þingfulltrúinn, 94 ára gamall. Vilhjálmur sagði Sigmund Davíð hafa heilmikið til brunns að bera og sagðist álíta að nýja forystan myndi gera sitt fyrir flokkinn. Krafa hefði komið fram um nýtt fólk. Vilhjálmur sagði mistökin sem upp komu í kosningu formanns hafa verið mjög leiðinleg. „Mér dauðbrá. Ég hef aldrei vitað svona mistök á ævinni. Ég hef nú sótt mörg landsþingin frá því 1944 og aldrei hefur neitt í þessa líkingu komið fram,“ sagði Vilhjálmur frá Brekku.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar