Fjöruferð

Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Fjöruferð

Kaupa Í körfu

LANDEIGENDUR við Hvalfjörð íhuga nú að höfða skaðabótamál vegna efnistöku Björgunar ehf. af hafsbotni í firðinum. Guðni Indriðason, bóndi í Laufbrekku á Kjalarnesi, segir jarðir þeirra liggja undir skemmdum vegna strandrofs og skaðinn sé þegar orðinn varanlegur. „Einhver kallaði þetta ríkistryggða eignaupptöku og velta má fyrir sér hverjum beri að stefna, Björgun eða íslenska ríkinu sem veitir fyrirtækinu leyfið. Við stöndum frammi fyrir því að reisa sjóvarnargarða víðsvegar um Hvalfjörðinn og hver á að borga þær framkvæmdir? Við bændurnir? Kostnaður mun hlaupa á tugum milljóna króna,“ segir Guðni. MYNDATEXTI Strandrof Frá fjörunni á Melum

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar