Hvítir borðar boða nýtt upphaf

Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Hvítir borðar boða nýtt upphaf

Kaupa Í körfu

MEÐ þessu vill hópur, sem tengist okkur, koma á framfæri þöglum skilaboðum um friðsamlegar breytingar en gagngerar en einnig nýtt upphaf. Hvítt er ekki bara litur friðarins heldur táknar einnig óskrifað blað,“ segir Ólína Þorvarðardóttir, einn forsvarsmanna Nýs lýðræðis, um hvíta borða sem blöktu á ljósastaurum, skiltum, brúm og víðar í höfuðborginni í gærmorgun. Hópurinn setti í gang undirskriftasöfnun á netinu í fyrradag þar sem skorað er á Alþingi og forseta að mynda utanþingsstjórn og boða til stjórnlagaþings sem semja myndi nýja stjórnarskrá.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar