Stjórnarmyndun og Alþingishúsið þrifið

Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Stjórnarmyndun og Alþingishúsið þrifið

Kaupa Í körfu

MIKIÐ hefur gengið á í Alþingishúsinu við Austurvöll undanfarna daga, jafnt innan þess sem utan. Mótmælendur hafa setið um húsið undanfarnar vikur og er krafa þeirra um nýja ríkisstjórn nú að verða að veruleika. Það verður því að teljast viðeigandi að unnið var að þrifum um það leyti sem forysta Vinstri grænna mætti til stjórnarmyndunarviðræðna við leiðtoga Samfylkingarinnar í gær. Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG, og Katrín Jakobsdóttir varaformaður gengu því hreinum fótum til viðræðnanna.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar