Í Undralandi

Rax / Ragnar Axelsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Í Undralandi

Kaupa Í körfu

HÚN er eitthvað furðuleg, heimsmyndin eins og hún blasir við þessum manni þar sem hann stendur á bryggjusporðinum. Það sem alla jafna hefur skýrar línur er aflagað í þeim spegli sem Ægir býður gestum og gangandi. Kannski hafið endurspegli þannig þann breytta veruleika sem flest okkar horfast í augu við þessa dagana. En þótt breytt sé getur nýja myndin verið heillandi og jafnvel svolítið ævintýralegri en sú gamla.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar