Baggalútur

Baggalútur

Kaupa Í körfu

UNDANFARNA daga hafa Baggalútsmenn verið að bisa við að hlaða grínaktugum myndskeiðum inn á hinn svokallaða myndverpil sinn sem áður hét reyndar sjónverpill. Fjalla þau m.a. um hörmungar vinstristjórna og mikilfengleik góðærisins, allt sett framan við meinhæðinn spéspegil Baggalútunga. Hið merkilega er að skeiðin voru upprunalega unnin fyrir kosningarnar 2007 og er forspárgildið sem í þeim er falið ekkert minna en sjokkerandi. Þessar tímalegu hnýtingar eru nú í fyrsta sinn aðgengilegar á vefnum MYNDATEXTI Baggalútur færir landslýð sannleikann. Karl er lengst til hægri.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar