Ellert og Elísabet

Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Ellert og Elísabet

Kaupa Í körfu

ELÍSABET Sveinsdóttir og Ellert Sigtryggsson kynntust sl. vor á Facebook. „Beta byrjaði að pota í mig,“ segir Ellert en „pot“ er vinsæl leið á Facebook til að láta vita að maður hafi áhuga. Hún hafði séð myndir af honum á síðu sameiginlegs vinar þeirra og leist vel á en þau þekktu ekki hvort annað. Hún ákvað að láta slag standa. „Ég potaði svo til baka,“ segir hann. Þau skiptust á að pota hvort í annað í nokkrar vikur þar til Elísabet sendi Ellert vinabeiðni. Þau sendu svo skilaboð á milli sín og þannig þróaðist sambandið smám saman. „Ég var ekki inni á Facebook í þessum tilgangi en svo er maður að heyra í dag að þetta sé orðinn hálfgerður skiptimarkaður, í staðinn fyrir einkamál.is, en mér finnst þetta stórsniðugt.“ Elísabet og Ellert hafa staðið í ströngu undanfarna daga við að mála og gera nýja, sameiginlega húsnæðið sitt tilbúið fyrir innflutning um helgina og eru börnin þeirra, á aldrinum 3-21 árs, afar ánægð með ráðahaginn MYNDATEXTI Par Elísabet og Ellert kynntust eftir að hún „potaði“ í hann á Facebook fyrir níu mánuðum. Þau munu flytja inn í sína fyrstu íbúð saman nú um helgina.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar