Háskóladagurinn á Háskólatorginu

Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Háskóladagurinn á Háskólatorginu

Kaupa Í körfu

LIÐLEGA 47 þúsund nemendur eru í framhalds- og háskólum, fleiri en nokkru sinni fyrr. Fjarnám hefur aukist mikið. Í haust voru skráðir nemendur 29.271 í framhaldsskólum landsins og 18.011 nemendur í háskólum, alls 47.282. Nemendur voru á annað þúsund fleiri en árið áður, sem svarar til 2,6% aukningar. Fram kemur í greinargerð Hagstofu Íslands að fjölgun nemenda skýrist fyrst og fremst af miklum vexti fjarnáms á báðum skólastigum. Einnig af grunnskólanemendum sem sækja í auknum mæli nám á framhaldsskólastigi. Grunnskólanemendur eru nú 5% skráðra nemenda í framhaldsskólum. MYNDATEXTI Háskóladagur Ýmsar aðferðir eru notaðar til að kynna námsmöguleika

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar