Valur - Stjarnan

Valur - Stjarnan

Kaupa Í körfu

LJÓST er að hin efnilega skytta, Þorgerður Anna Atladóttir mun ekki leika með Stjörnunni í bikarúrslitunum gegn FH í Eimskipsbikarkeppni kvenna í handknattleik næsta laugardag. Þorgerður meiddist í gær í leik með 3. flokki þegar brotið var gróflega á henni í gegnumbroti. „Hún fer til læknis á morgun (í dag) og þá kemur í ljós hvað er að. Líklega sleit hún þó liðband í ökkla. Hún er úr leik og mikið áfall að missa hana úr hópnum rétt fyrir bikarúrslitin,“ sagði Atli Hilmarsson, þjálfari Stjörnunnar og faðir Þorgerðar MYNDATEXTI Þorgerður Anna Atladóttir *** Local Caption *** Þorgerður Anna Atladóttir, Stjarnan.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar