112 dagurinn

112 dagurinn

Kaupa Í körfu

Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna efndi til árlegs eldvarnaátaks í nóvember 2008 í samstarfi við TM, Brunamálastofnun, slökkviliðin, 112 og fleiri aðila. Slökkviliðsmenn heimsóttu nær alla grunnskóla landsins, fræddu átta ára börn um eldvarnir og öryggismál og gáfu þeim kost á að taka þátt í Eldvarnagetrauninni 2008. Einstaklega góð þátttaka var í eldvarnagetrauninni, sem einnig birtist hér í Barnablaðinu 29. nóvember síðastliðinn. Nöfn 33 barna víðs vegar af landinu voru dregin úr innsendum lausnum. Börnin fengu vegleg verðlaun að vanda og voru þau afhent víða um land á 112-daginn, 11. febrúar.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar