Hero

Hero

Kaupa Í körfu

*KFUM og KFUK frumsýna rokkóperuna !Hero í Loftkastalanum annað kvöld *Um 70 manns koma að sýningunni, m.a. leikarar, dansarar, kór og hljómsveit "ÞETTA gerðist eiginlega óvart, ég og tónlistarstjórinn minn vorum að spjalla við framkvæmdastjóra KFUM og fórum að tala um þessa sýningu. Við laumuðum því að henni að okkur langaði að setja þetta upp, og hún bara gleypti það á staðnum. Stuttu seinna vorum við farin á fullt," segir Rakel Brynjólfsdóttir, leikstjóri rokkóperunnar !Hero sem verður frumsýnd í Loftkastalanum annað kvöld. Það er Kristilegt félag ungra manna og kvenna á Íslandi sem stendur að uppfærslunni sem er því á nokkuð kristilegum nótum. Birtist á baksíðu með tilvísun á bls. 38

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar