Fermingarförðun

Fermingarförðun

Kaupa Í körfu

Fermingardagurinn er stór dagur í lífi margra barna og það eru því sífellt fleiri stúlkur sem ákveða að láta farða sig á þessum degi. Sú förðun er jafnan mjög náttúruleg og falleg að sögn Þóru Ólafsdóttur, listförðunarfræðings hjá Airbrush & Make up gallery. Þóra farðaði Miriam Eriksdóttir Giovanni fallegri og náttúrulegri förðun í líkingu við það sem margar fermingarstúlkur kjósa á fermingardaginn. „Það er að aukast heilmikið að fermingarstúlkur fari í förðun og kannski ekki síst vegna þess að þær ætla í myndatöku. Það er oft nauðsynlegt að hafa einhverja förðun fyrir myndatöku svo hún komi betur út.“ MYNDATEXTI Stór dagur Þóra Ólafsdóttir farðar hér Miriam Eriksdóttur Giovanni en förðunin hentar vel á fermingardaginn

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar