Söngvakeppni Sjónvarpsins 2009

Söngvakeppni Sjónvarpsins 2009

Kaupa Í körfu

Þrátt fyrir ungan aldur virðist söngkonan Jóhanna Guðrún vera eldri en tvævetur þegar kemur að markaðsmálum. Eins og alþjóð trúlega veit verður Jóhanna fulltrúi Íslands í Evróvisjón í Moskvu í maí, en síðan hún var valin hefur hún notið mikilla vinsælda hér á landi. Þannig vermir hún til dæmis efsta sæti lagalistans hér í Morgunblaðinu með vinsælasta lagi landsins, „Is It True“. Jóhanna hefur greinilega ákveðið að hamra járnið meðan það er heitt því nú auglýsir hún grimmt plötu sína, Butterflies and Elvis, sem kom út um mitt síðasta ár. Í auglýsingunni er platan hins vegar sögð ný, sem er greinilega teygjanlegt hugtak.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar