Fiskur í matinn

Rax / Ragnar Axelsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Fiskur í matinn

Kaupa Í körfu

ALLA daga frá áramótum hafa nemendur í Hagaskóla átt kost á fiskmáltíð í hádeginu, til viðbótar við annað sem í boði er. Í gær var t.d. bæði grjónagrautur og svokallaður bixímatur að auki en að sögn Þrastar Harðarsonar, matráðs í Hagaskóla, fóru engu að síður 60 skammtar af þorskinum, sem rann ljúflega niður kverkar krakkanna. „Ég er búinn að velta því fyrir mér í mörg ár að hafa fisk í boði á hverjum degi og kýldi svo á það nú um áramótin,“ segir hann og bætir því við að um 30% matargesta borði nú fiskinn frekar en eitthvað annað.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar