Skúli Helgason og fjölskylda

Skúli Helgason og fjölskylda

Kaupa Í körfu

ÞAÐ er óhætt að segja að nýafstaðið prófkjör Samfylkingarinnar í Reykjavík verði Skúla Helgasyni eftirminnilegt, en auk þess að hafna í fimmta sæti í prófkjörinu fæddist honum og eiginkonunni, Önnu Lind Pétursdóttur, sonur aðfaranótt sunnudags. „Þetta var viðburðaríkur sólarhringur,“ segir Skúli sem fyrir á þrjá drengi. Drengurinn, sem kom í heiminn á þriðja tímanum í nótt, lét bíða eftir sér í viku. MYNDATEXTI Skúli og Anna Lind með nýjasta afkvæmið. Teitur Helgi, Darri og Bergur Máni eru stoltir af litla bróður.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar