Kreppuleikrit í Borgarleikhúsinu

Kreppuleikrit í Borgarleikhúsinu

Kaupa Í körfu

LEIKVERKIÐ Þú ert hér, sem fjallar meðal annars um ástandið í þjóðfélaginu í kjölfar bankahrunsins, verður frumsýnt í Borgarleikhúsinu í næstu viku. Í tilefni af því fékk leikhúsið Porsche Cayenne-jeppa að láni, en hann verður hluti af leikmyndinni sem táknmynd þess sem átt hefur sér stað hér á landi. Á meðan á sýningum stendur greiðir leikhúsið afborganir af bílnum fyrir eiganda hans, en að sögn Jóns Páls Eyjólfssonar, eins af aðstandendum sýningarinnar, þótti betur við hæfi að fara þá leið en að leita til bílaumboðanna. Á myndinni má sjá leikarana Jón Pál, Jón Atla Jónasson og Hall Ingólfsson við hlið jeppans

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar