Seðlabanki Íslands lækkar stýrivexti

Seðlabanki Íslands lækkar stýrivexti

Kaupa Í körfu

HIN nýja peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands tilkynnti í gær að hún hefði ákveðið að lækka stýrivexti bankans um eitt prósentustig í 17,0%. Það jákvæða við þessa tilkynningu er að vaxtalækkunarferli er þar með hafið. Í annan stað felast hugsanlega skilaboð um frekari vaxtalækkun í þeirri ákvörðun nefndarinnar, að bæta við vaxtaákvörðunardegi eftir einungis tæpar þrjár vikur, eða hinn 8. apríl næstkomandi. MYNDATEXTI: Einbeittur Svein Harald Øygard, seðlabankastjóri, ásamt Þórarni G. Péturssyni, aðalhagfræðingi bankans.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar