Opið hús í Waldorfskólanum í Lækjarbotnum.

Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Opið hús í Waldorfskólanum í Lækjarbotnum.

Kaupa Í körfu

Hvenær verður klukkan tvö?“ spurði lítil sjö ára gömul stelpa sem sat og borðaði rjómatertu sem mamma hennar hafði keypt handa henni í kaffisölu 7. og 8. bekkjar Waldorfskólans í Lækjarbotnum. Opið hús var í skólanum og stelpunni hafði verið sagt að forsetinn ætlaði heimsækja skólann klukkan tvö. Á hól fyrir ofan skólann stóð hópur af krökkum sem biðu spenntir eftir að sjá forsetabílinn koma keyrandi frá Suðurlandsveginum. Hann kom klukkan hálf fjögur. MYNDATEXTI Í Waldorfskóla Börnin skemmtu sér og sýndu verk sín í opnu húsi í Waldorfskólanum við Lækjarbotna. Forsetinn kom einnig í heimsókn.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar