Vorið er komið

Vorið er komið

Kaupa Í körfu

VORBOÐARNIR láta á sér kræla einn af öðrum þessa dagana. Fréttir bárust af því fyrir helgi að sést hefði til lóunnar á Höfn í Hornafirði og litfagrir laukar eru farnir að gægjast upp úr moldinni í görðum landsmanna. Þriðja óræka merki þess að vorið sé á næsta leiti eru gatnaviðgerðir um borg og bý. Þessir verklegu vorboðar voru að störfum í sól og blíðviðri í Lækjargötu í gær þar sem ljósmyndari átti leið hjá.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar