ÍR - Snæfell

ÍR - Snæfell

Kaupa Í körfu

Það er góður andi í hópnum og við mættum með það hugarfar að við hefðum engu að tapa. Það hefur enginn trú á okkur nema við sjálfir en ég var alltaf viss um okkur tækist að sigra,“ sagði Hlynur Bæringsson, leikmaður og þjálfari Snæfells, eftir ótrúlega spennandi leik liðsins gegn Grindavík á útivelli í undanúrslitum úrvalsdeildar karla í körfuknattleik. Leikurinn var tvíframlengdur og endaði hann 104:97 fyrir Snæfell. Staðan er 2:1 fyrir Grindavík en það lið sem fyrr vinnur þrjá leiki kemst í úrslitin um Íslandsmeistaratitilinn gegn KR. MYNDATEXTI Öflugur Lucious Wagner, bandaríski leikmaðurinn í liði Snæfells.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar