Á Seltjarnarnesi

Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Á Seltjarnarnesi

Kaupa Í körfu

Náttúrufræðitími í fjörunni á Seltjarnarnesi ÞÓTT svalt sé í lofti og skæni á pollum má ætíð finna eitthvað forvitnilegt í fjörunni. Þau hafa eflaust komist að því, nemendur Valhúsaskóla á Seltjarnarnesi, þegar náttúrufræðitíminn í gær var fluttur út undir bert loft og niður í fjöru, skammt frá skólanum. Á þessum mörkum lands og sjávar er sérstakur heimur og iðulega finna fjörufarar forvitnilega fjársjóði - þótt þeir séu ekki endilega til prófs.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar