Gunnar Nelson

Árni Torfason

Gunnar Nelson

Kaupa Í körfu

Gunnar Nelson, tvítugur íslenskur bardagalistamaður, er óðum að skapa sér nafn í heimi brasilísks jiu-jitsu í Bandaríkjunum og um liðna helgi sló hann í gegn á sterku móti í New York, Pan jiu-jitsu-meistaramótinu 2009. Ekki nóg með að hann legði hinn nafnkunna Clark Gracie, sem er úr innsta hring Gracie-fjölskyldunnar sem þróaði brasilískt jiu-jitsu, í fyrstu glímunni heldur sigraði hann fjóra næstu andstæðinga sína líka, þeirra á meðal silfurverðlaunahafann frá síðasta heimsmeistaramóti, Bruno Alves, á hengingartaki í úrslitaglímunni. Þar með hreppti Gunnar gullverðlaunin í sínum flokki. MYNDATEXTI Í lestinni Á hverjum degi ferðast Gunni með neðanjarðarlestum frá Queens-hverfinu þar sem hann býr í íþróttasalinn sem er staðsettur á Manhattan.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar