Árshátíð kvikmyndagerðarmanna

Árshátíð kvikmyndagerðarmanna

Kaupa Í körfu

ÁRSHÁTÍÐ íslenskra kvikmyndagerðarmanna var haldin í fyrsta sinn á Hótel Loftleiðum á miðvikudaginn. Til hátíðarinnar voru boðnir kvikmyndagerðarmenn úr öllum deildum iðnaðarins, svo sem leikstjórar, kvikmyndatökumenn, ljósamenn, brellumeistarar og förðunarfólk en þar sem meirihluti þessara atvinnumanna er sjálftstætt starfandi hefur reynst erfitt að halda slíka hátíð fyrr. Eins og sjá má á myndunum mættu kvikmyndagerðarmenn í sínu fínasta pússi og fögnuðu árangrinum sem þeir geta án efa verið stoltir af. MYNDATEXTI Fjólublátt ljós við barinn Lilja Jónsdóttir, Júlía Embla Katrínardóttir og Ásta Briem stóðu við barinn

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar