Stjarnan - Valur

Stjarnan - Valur

Kaupa Í körfu

STJARNAN úr Garðabæ á ennþá kost á því að verja Íslandsmeistaratitil sinn í handknattleik kvenna eftir sigur á liði Vals í æsispennandi og jöfnum leik. Þurfti framlengingu til að fá úr því skorið hvort liðið færi með sigur af hólmi og kæmist í úrslit gegn Fram og fengu handboltaunnendur flotta skemmtun fyrir allan peninginn í Mýrinni í gær. Lokatölur eftir venjulegan leiktíma voru 25:25 en að lokinni framlengingu var niðurstaðan 30:28 fyrir ríkjandi Íslandsmeistara, hinar bláklæddu Stjörnukonur. MYNDATEXTI Áfangi Þorgerður Atladóttir og félagar hennar úr liði Stjörnunnar leika til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn. Hér sækir Þorgerður að vörn Vals og Drífa Skúladóttir er til varnar. Það verða Fram og Stjarnan sem keppa um titilinn.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar