Jonathan Stonestreet

Jonathan Stonestreet

Kaupa Í körfu

VIÐ verðum á ferðinni um landið og ætlum að fylgjast með framkvæmd kosninganna í öllum kjördæmum,“ sagði Jonathan Stonestreet, talsmaður Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu (ÖSE), í samtali við Morgunblaðið í gær. Tíu fulltrúar frá stofnuninni eru staddir hér á landi til þess að fylgjast með því að alþingiskosningarnar í dag fari fram samkvæmt lögum og reglum. „Við verðum í tveggja manna teymum. Þau vinna út frá Akureyri, Borgarnesi, Selfossi, Hafnarfirði og Reykjavík og fylgjast með framkvæmd kosninganna,“ sagði Stonestreet. MYNDATEXTI Eftirlit Stonestreet frá ÖSE.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar