Landið vaknar

Rax / Ragnar Axelsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Landið vaknar

Kaupa Í körfu

Þegar landið vaknar af vetrarblundi, lýkst almáttugt auga þess upp og náttúran losnar úr læðingi, leikur við hvern sinn fingur og framkallar alls kyns furðumyndir í landið. Það er fátt skemmtilegra en að rýna í þessar myndir, gefa ímyndunaraflinu lausan tauminn og eignast hlutdeild í þeirri kynjaveröld sem landið okkar er. Á stærstu ljósmyndinni, þeirri fyrir ofan auga landsins, flæmist drekinn mikli fram Suðurland í allri sinni makt, sem okkur mönnunum fer bezt á að virða, þegar við virðum drekann fyrir okkur.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar