KSÍ

KSÍ

Kaupa Í körfu

Í ljósi þess að FH hefur unnið Íslandsmeistaratitilinn fjórum sinnum á síðustu fimm árum þá er alls ekki óeðlilegt að okkur sé spáð titlinum að þessu sinni,“ sagði Heimir Guðjónsson, þjálfari Íslandsmeistara FH í knattspyrnu karla. Í árlegri spá þjálfara og fyrirliða félaga í efstu deild karla er lærisveinum Heimis spáð sigri í Pepsi-deildinni í sumar og Íslandsmeistaratitli annað árið í röð. MYNDATEXTI Þjálfarar 11 liða af 12 í Pepsi-deild karla, efri röð f.v.: Heimir Hallgrímsson, Gunnar Oddsson, Logi Ólafsson, Heimir Guðjónsson, Willum Þór Þórsson, Kristján Guðmundsson. Neðri röð f.v.: Bjarni Jóhannsson, Ólafur Þórðarson, Ásmundur Arnarson, Þorvaldur Örlygsson og Milan Stefán Jankovic. Ólafur H. Kristjánsson, þjálfari Breiðabliks, mætti ekki á kynningarfundinn í gær, var í útlöndum.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar