Óskin rættist

Alfons Finnsson

Óskin rættist

Kaupa Í körfu

Ólafsvík | Unglingarnir í félagsmiðstöðinni Afdrepi í Ólafsvík útbjuggu óskalista í vetur, á óskalistanum voru þeir hlutir sem þau vildu helst sjá að væru keyptir í félagsmiðstöðina. Efst á þessum lista voru atriði eins og flatskjár og Wii-leikjatölva, mikil gleði ríkir nú í Afdrepi þar sem þessar óskir hafa ræst. Fulltrúar frá Lionsklúbbnum Þernunni á Hellissandi gáfu félagsmiðstöðinni 24 tomma flatskjá ásamt Wii-leikjatölvu og 4 fjarstýringar/stýripinna. MYNDATEXTI Allir ánægðir Frá afhendingu gjafanna.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar