Ólafur Thoroddsen

Heiðar Kristjánsson

Ólafur Thoroddsen

Kaupa Í körfu

Svartfugl eftir Gunnar Gunnarsson kominn í hlaðvarp RÚV í lestri skáldsins á þýðingu Magnúsar Ásgeirssonar "ÞETTA er komið á hlaðvarpið og verður þar, fólk getur sótt það, hlaðið inn í tölvurnar sínar, á diska eða í spilastokka, átt í safni sínu og hlustað þegar það langar til, endurgjaldslaust," segir Ólafur Thoroddsen, tæknimaður hjá Ríkisútvarpinu, en í tilefni af 120 ára afmæli Gunnars Gunnarssonar skálds í gær fór upptaka útvarpsins á lestri skáldsins á eigin verki, Svartfugli, í þýðingu Magnúsar Ásgeirssonar í hlaðvarpið á vef RÚV. MYNDATEXTI: Ólafur Thoroddsen "Upptökurnar voru gamlar og ég sá fljótt að það þyrfti eitthvað mikið til að hreinsa þær."

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar