Leikskólinn Skógarborg 40 ára

Heiðar Kristjánsson

Leikskólinn Skógarborg 40 ára

Kaupa Í körfu

LEIKSKÓLINN Skógarborg hélt upp á 40 ára afmæli sitt í gær. Boðið var upp á tónlistaratriði, myndlistarsýningu og veitingar. Í skólastarfinu er helst lögð áhersla á að hafa barnið í brennidepli; tilfinningalegt styðjandi umhverfi, skapandi starf, lesþroska, ritmál og stærðfræðilega hugsun. Skógarborg tók til starfa 7. júlí árið 1969 og var til að byrja með í litlu húsi við Klifveg. Árið 2006 fluttist leikskólinn í nýtt húsnæði í Efstalandi 28. Í leikskólanum eru á bilinu 50-53 börn sem njóta nálægðarinnar við náttúruparadísina í Fossvogsdal.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar