Guðný Guðmundsdóttir

Guðný Guðmundsdóttir

Kaupa Í körfu

LEIÐSÖGN um sýningar Jónínu Guðnadóttur og Guðnýjar Guðmundsdóttur verður kl. 18 í dag í Hafnarborg. Þar er tveimur kynslóðum listamanna teflt saman en hvor um sig er mótuð af sterkum tíðaranda og aðstæðum sem hafa áhrif á feril þeirra og sköpun. Í frétt frá Hafnarborg segir að í verkum kvennanna mæti jarðbundinn og efnislegur heimur leirs og lands, huglægum og fíngerðum heimi þar sem form og frásögn eru fléttuð saman í sterka heild. Sýningarnar tvær eru samtal tveggja kynslóða sem mótaðar eru af ólíkum aðstæðum. MYNDATEXTI Guðný við eitt verka sinna.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar