Magnea Hjálmarsdóttir

Magnea Hjálmarsdóttir

Kaupa Í körfu

LÍKLEGA er það við hæfi að uppáhaldsland Magneu Þóreyjar Hjálmarsdóttur, framkvæmdastjóra Flugleiðahótela, sé Ísland og hennar helsta áhugamál er útivera í faðmi fjölskyldunnar. Samtals eiga hún og eiginmaður hennar, Þorsteinn Örn Guðmundsson verkfræðingur, fimm börn á aldrinum 8-21 árs. Þegar hægist um hjá mörgum í vinnunni og Íslendingar njóta veðurblíðunnar hefst hennar annatími. Vorið í ferðaþjónustunni er hafið, segir hún um maímánuð og bendir á að skammt sé í að allt fari á fulla ferð og maí hefur sem betur fer verið vel bókaður. Flugleiðahótelin sjá um rekstur á Hilton Reykjavík, Icelandair-hótelunum og Eddu-hótelunum. MYNDATEXTI Uppskera Magnea Þórey Hjálmarsdóttir, framkvæmdastjóri Flugleiðahótela, spáir svipuðu sumri og í fyrra.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar