Sumarið sungið inn í Hafnarfirði

Sumarið sungið inn í Hafnarfirði

Kaupa Í körfu

UM 350 krakkar sungu inn lista- og menningarhátíðina Bjarta daga á Thorsplani í Hafnarfirði í gærmorgun. Síðar um daginn söng Jóhanna Guðrún Jónsdóttir Evróvisjón-lagið sitt Is it true? fyrir gesti á hátíðinni en Jóhanna var útnefnd bæjarlistamaður Hafnarfjarðar í gær. Kristján Tryggvi Martinsson tónlistarmaður og Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir fengu hvatningarstyrki bæjarins. Á hátíðinni, sem stendur í 11 daga, verða fjölbreyttir tónleikar, myndlistarsýningar, bíó- og leiksýningar, ratleikir, fuglaskoðun og fleira.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar