Bruni á Kleppsvegi

Golli/Kjartan Þorbergsson

Bruni á Kleppsvegi

Kaupa Í körfu

TVEIR karlmenn og ein kona voru handtekin í gær í tengslum við eld sem kom upp á Kleppsvegi 102 í gærmorgun. Eru þau grunuð um að skvett bensíni yfir innanstokksmuni. Fólkið hefur áður komið við sögu lögreglu. Eldur kviknaði í tvílyftu einbýlishúsi en slökkviliði höfuðborgarsvæðisins tókst fljótlega að ráða niðurlögum eldsins. Að sögn slökkviliðs gekk starfið á vettvangi vel og vandræðalaust. Þegar slökkvilið kom á vettvang hafði eldurinn náð að teygja sig upp í ris hússins. MYNDATEXTI Bruni Slökkvilið náði fljótlega að ráða niðurlögum eldsins á Kleppsvegi. Þrír eru grunaðir um að hafa lagt eld að húsinu snemma í gærmorgun.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar