Varðskipið Ægir

Varðskipið Ægir

Kaupa Í körfu

Varðskip Landhelgisgæslunnar, Ægir og Týr, sinna fjölbreyttum verkefnum í landhelgi Íslands en hlutverk Gæslunnar er að standa vörð um fullveldisrétt Íslands á hafsvæðinu í kringum landið og gæta ytri landamæra. Með öflugri öryggis- og löggæslu, eftirliti, leit og björgun ber Landhelgisgæslunni að stuðla að öryggi sjófarenda, fólksins í landinu og verndun auðlinda með sem bestum og hagkvæmustum hætti. Kjörorðið við erum til taks vísar á breiðum grundvelli til starfsemi Landhelgisgæslunnar í nútíð og framtíð. MYNDATEXTI Um borð Varðskipsmenn nýfarnir um borð í Aðalbjörgu RE 5 í hefðbundið eftirlit. Tveir menn verða eftir um borð en hinir snúa aftur til varðskips á léttbátnum. Eftirlitið felst í því að fara yfir afla, veiðarfæri, réttindi og búnað. Skipið reyndist vera með allt sitt á hreinu.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar